Skip to content
Opens in a new window
264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um
26 September 2026

264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um

Heimskviður

About
Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni en í 75 ár hefur verið í gildi mjög strangt eða algjört viðskiptabann af hálfu Bandaríkjanna. Við ræðum við Hafliða Sævarsson um stöðuna á Kúbu, söguna og framtíðarhorfur.

Milljónir hafa fylgst með réttarhöldum yfir bandarísku konunni Lindsey Clancy sem ákærð er fyrir að drepa börnin sín þrjú. Þó málið hafi fengið heljarmikla athygli eru fjölskylduharmleikir sem þessir ekki án fordæma þar vestra. Á þeim sex vikum sem réttarhöldin yfir Clancy stóðu drápu átta karlmenn eiginkonu sína og börn í Bandaríkjunum. Alma Ómarsdóttir kynnti sér málið sem allir eru að tala um.