Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Podcasts
Audiobooks
Bible
By Genre
By Location
By Language
Religious
Music
News
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Heimskviður
News & Politics
Icelandic
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Website
Episodes
Episodes
278
24 October 2026
268 - Auðir stólar og fjölþáttaógnir
Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Framkvæmdastjóri NATO segir að fjölþáttaógnir séu allt of krúttlegt orð miðað við hvað það eigi að ná yfir og...
42 min
17 October 2026
267 - Spennandi kosningar í Serbíu og sigurvegarinn í landslénalottóinu
Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis, segir viðmælandi Heimskviða um komandi þingkosningar í Serbíu. Þetta hljómar dramatískt en hann er ekki einn á þeirri skoðun. Kosningunum er lýst sem þjóðaratkvæðagreiðslu milli mannsins sem nýverið sagði af sér sem forseti og vill núna verða forsætisráðherra og svo fjöldahreyfingar stúdenta sem hefur teflt fram sínum...
45 min
10 October 2026
266 - Leiðtogafundir þá og nú og furstadæmið Lichtenstein
Það eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og margs að minnast. Af hverju var fundurinn haldinn á Íslandi? Var það fyrir tilstilli íslenskra barna sem skrifuðu Raisu Gorbachevu bréf, var það stjörnuspá eða vegna öryggissjónarmiða? Við skoðum líka í hvaða andrúmslofti fundurinn átti sér stað, bæði hér á landi og í heiminum öllum. Svo ætlum við til Lichtenstein, lands sem við heyrum reglulega...
43 min
03 October 2026
265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?
Norski fjarskiptarisinn Telenor er í vandræðum. Lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum þess vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni með því að láta herforingjastjórninni í Mjanmar í té upplýsingar um viðskiptavini þar eftir valdarán hersins árið 2021. Leiðtogi landsins fyrir valdaránið var meðal þessara viðskiptavina. Fyrirtækið segist ekki hafa átt annarra kosta völ, en...
39 min
26 September 2026
264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um
Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni en í 75 ár hefur verið í gildi mjög strangt eða algjört viðskiptabann af hálfu Bandaríkjanna. Við ræðum við Hafliða Sævarsson um stöðuna á Kúbu, söguna og framtíðarhorfur. Milljónir hafa fylgst með réttarhöldum...
50 min
19 September 2026
263 - Lockerbie og ríkasta kona Rússlands
Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem missti föður sinn í hryðjuverkunum telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Ólöf Ragnarsdóttir talar við hana í Heimskviðum í dag. Svo fjöllum við um ríkustu konu Rússlands...
44 min
12 September 2026
262 - Graceland og El Niño
Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega....
44 min
05 September 2026
261 - Pólitík í Úkraínu og sumarið sem leið
Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið...
44 min
29 August 2026
Sumarheimskviður - Flókin talning og áttræðir rapparar
Nú fer sumrinu að ljúka og þetta er síðasti þáttur sumarsins. Við byrjum af fullum krafti næsta laugardag með splunknýjar Heimskviður, þar sem við ætlum að gera upp það helsta í fréttum sumarsins á erlendum vettvangi. Í þættinum í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun okkar frá því í vor um eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar. Indverjar eru langt komnir með að telja fjölmennustu þjóð...
39 min
22 August 2026
Sumar-Heimskviður - Morð
Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beittu konur sínar ofbeldi og þær sáu enga aðra leið úr viðjum...
43 min