Skip to content
Opens in a new window
Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu
08 November 2026

Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu

Fotbolti.net

About
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu.

Guðmundur Aðalsteinn og Haraldur Örn fara yfir helstu sögulínur eftir tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Everton er á flottu róli þrátt fyrir erfiðleika utan vallar en til að fara yfir það kom Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, í heimsókn í Coke stúdíóið.

Þá var farið yfir það hvaða stjórar væru líklegastir til að missa starfið í landsleikjahléinu.