Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Podcasts
Audiobooks
Bible
By Genre
By Location
By Language
Religious
Music
News
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
14 November 2026
Útvarpsþátturinn - Gauja Þórðar minnst eftir fimm stjörnu frammistöðu í Búlgaríu
Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta.Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum.Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og leikurinn verður gerður upp. Elvar Geir Magnússon og Arnar Gunnlaugsson á línunni.Farið er yfir fréttir vikunnar, bæði hér heima og úti. Mauricio Pochettino er að taka við Manchester...
12 November 2026
Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum.Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Andra Lucas Guðjohnsen.Thule léttöl og Eimskip bjóða þér upp á þáttinn.
11 November 2026
38 umferðir - Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti splúnkunýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
09 November 2026
Beint frá Benidorm - Horfast í augu við mistökin
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag.Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða líklegt byrjunarlið og spilað er viðtal við fyrirliðann Orra Stein Óskarsson sem tekið var á La Finca hótelsvæðinu. Landsliðsmenn tala agabrot síðasta glugga ekkert niður og horfast í augu við...
08 November 2026
Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu.Guðmundur Aðalsteinn og Haraldur Örn fara yfir helstu sögulínur eftir tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.Everton er á flottu róli þrátt fyrir erfiðleika utan vallar en til að fara yfir það...
05 November 2026
Útvarpsþátturinn - Enginn í agabanni og lið fá einkunnir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni.Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir tímabilið. Rætt er um valið á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni og spilað viðtal við Arnar Gunnlaugsson.Hvað er Bubka Sports Lab? Hallgrímur Heimisson...
04 November 2026
38 umferðir - Pálínuboð
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke stúdíóinu en Pálína er frábær fantasy spilari og hefur farið vel af stað þetta tímabilið.
01 November 2026
Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir
Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik og eru í hrikalega góðum málum.Manchester United er hins vegar ekki í góðum málum og eru bara fyrir ofan fallsvæðið á markatölu. Michael Carrick heldur sér samt í starfi. Brighton...
31 October 2026
Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special!Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum. Það er aðalmálið í þættinum í dag.Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta og formaður fótboltans í Garðabænum, Halldór Orri Björnsson, kemur í heimsókn.
27 October 2026
38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við...