Skip to content
Opens in a new window
38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag
18 August 2026

38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag

Fotbolti.net

About
Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.

Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á samfélagsskildinum, helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag.

Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov