Skip to content
Opens in a new window
Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans
17 October 2026

Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans

Vikulokin

About
Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum.

Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta.

Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.