Skip to content
Opens in a new window
Kjördagur, uppsagnir og kjaramál
29 August 2026

Kjördagur, uppsagnir og kjaramál

Vikulokin

About
Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu.

Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing.

Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins.

Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR, og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.