Skip to content
Opens in a new window
Verðbólgan og vinnumarkaðurinn, drónar og fjölþáttaógnir.
13 August 2026

Verðbólgan og vinnumarkaðurinn, drónar og fjölþáttaógnir.

Spegillinn

About
Það er hvorki fyrsti kostur launþega né atvinnurekenda að segja upp samningum í september en launþegar geta ekki einir setið uppi með kostnað af verðbólgunni, segir ASÍ. SA telur aftur á móti að kaupmátturinn hafi skilað sér. Óljóst er hvort samningum verður sagt upp í haust.

Drónar voru eitt sinn skemmtilegt leikfang en hugvitsamir hermenn breyttu þeim og nú eru drónar notaðir í stríði og hryðjuverkum - ekki síst fjölþáttaaðgerðum þar sem erfitt er að átta sig á hver er að verki. Drónaatvik hafa orðið á Íslandi en skipulag eftirlits og viðbragðs er ómarkvisst.