Skip to content
Opens in a new window
Skyldur Íslands í loftslagsmálum
05 August 2026

Skyldur Íslands í loftslagsmálum

Spegillinn

About
Í ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga frá því í fyrra kemur skýrt fram að þar sem loftslagsmál hafi áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum beri öllum heimsins ríkjum skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í álitið fyrir Loftslagsráð. Hann segir það hafa mikla þýðingu fyrir Ísland, íslenska löggjöf og samskipti Íslands við önnur ríki og alþjóðastofnanir.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred