About
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.
Í dag erum við enn á ný í Bandaríkjunum, og í þetta skiptið erum við í McKeesport í Pennsylvaníu.
Unglingsstelpu líður ekki frábærlega á heimili sínu svo hún bregður á það ráð að flýja það ítrekað, alveg þar til einhver maður tekur á móti henni með opinn faðm og heimili. Sem er reyndar í rauninni fangelsi, en hún komst ekki að því fyrr en aðeins of seint. Því miður!
Þáttur dagsins er í boði Securitas, BL, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Sassy, Gjafabréf.is og Forlagsins.
Þolandi: Tanya Nicole Kach
Gerendur: Thomas John Hose og Judith „Judy" Sokol