Skip to content
Opens in a new window
Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)
10 September 2026

Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)

Með lífið í lúkunum

About

Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.

Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.

Miðasala er hafin hér.


Húsið opnar kl.18:15

Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn.

Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22.

    Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsaEdda Björgvins- Húmor og heilsaElísabet Reynis- Næring og heilsaHalldóra Skúla- Hormónar og heilsaKvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó)

Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld.

Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði.

Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð, Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst.

p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is


*Matseðill. Þú getur valið um:
1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu.
2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk.
3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu.

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!