
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur.
„Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf.
Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og skapa meiri meðvitund í daglegu lífi.
Að baki podcastinu stendur Virkja sem er markþjálfunarskóli, þar starfa hópur reyndra markþjálfa með ástríðu fyrir vexti, mannlegum tengslum og því að styðja fólk í að efla innri styrk sinn og meðvitund.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!