128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson
Með lífið í lúkunum
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum.
Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg samskipti, tilgangur og fleira séu allt jafn mikilvægir þættir til þess að upplifa heilbrigði.
Kristján Þór sem hefur sérhæft sig í offitu, næringu og lýðheilsu bendir einnig á mikilvægi þess að finna rót vandans í langvinnum krónískum sjúkdómum til þess að hægt sé að snúa við þróun þeirra.
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle.
🌱 -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!