Skip to content
Opens in a new window
124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.
11 August 2026

124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.

Með lífið í lúkunum

About

Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.

Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira. 

Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar. 

Einnig má finna verkefnið á Instagram


Sérstakar þakkir til samstarfsaðilanna minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 

💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 

🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun

💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.

💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.



Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!