zeno
Home
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Log in
Sign up
Toggle Sidebar
zeno
Snorri Björns
LANGA - hlaðvarp
Health & Fitness
Icelandic
Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.
Website
Episodes
64
05 September 2025
60. Gleði vs. árangur, Kenía mætt í UTMB, sigurformúla í ruslið og eru hlaup að breytast í Formúlu 1?
Vænleg yfirferð yfir stærstu utanvegahlaupaveislu ársins: UTMB. Kenía er farin að láta finna fyrir sér í trail-heiminum, með tilheyrandi efasemdum og spurningarmerkjum, er Courtney Dauwalter að taka keppninni of léttúðlega? Er Jim Walmsley ósnertanlegur? KK og KVK sigurvegarar UTMB þjálfaðir af sama aðilanum - sama aðila og Caleb Olson segir upp eftir stórsigur sinn í Western Sates! Hvað getur...
1 h 52 min
02 September 2025
59. Sigrar RM 21,1km og bestur í skíðagöngu - Dagur Benediktsson
Dagur mætti inná skrifstofu til framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækis fyrir 8 árum, þá 20 ára gamall, og lagði fyrir hann áætlun um markmið fyrir glæstan skíðagönguferil sem hann þurfti hjálp við að framkvæma.Í dag er hann besti skíðagöngumaður landsins, hleypur 10km á 33:28 og sigraði hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst síðastliðnum. Dagur er hér krafinn um svör við þjálffræði,...
1 h 25 min
26 August 2025
ÍBR svarar fyrir sig
Óánægju gætir innan hlaupasamfélagsins með framkvæmd á Reykjavíkurmaraþoninu, en í fyrsta skipti í 40 ára sögu hlaupsins voru hlauparar ræstir í tveimur flokkum: keppnis- og almennum flokki. Ringulreiðin sem því fylgdi bitnaði á upplifun og frammistöðu keppenda.Hrefna Hlín, sviðsstjóri viðburðarsviðs ÍBR, gefur okkur innsýn inn í ákvörðunartöku og framkvæmd hlaupsins og segir sína hlið á málinu.
37 min
24 August 2025
58. Hlynur & Baldvin: RM, maraþonæfingar, single threshold, lyfjapróf og 100km
Hlynur og Baldvin mæta á DURA drykkjarstöðina degi eftir Reykjavíkurmaraþonið til að gera upp viðburðinn, brautarmet Baldvins, vonbrigði Hlyns og allt því sem viðkemur því að skara fram úr í hlaupum - þvert á vegalengdir!
1 h 39 min
20 August 2025
57. Sprengjur í RM, léleg ITRA stig, maraþon vs. Laugavegur og Andrea vs. Elísa
Við fylgjum eftir viðtölum við Baldvin Þór og Hlyn Andrésson með sjóðheitri umræðu um Reykjavíkurmaraþonið. Viktor Orri mætti á DURA drykkjarstöðina til að ræða möguleika Baldvins og Hlyns til að slá met, Elísu á móti Andreu í hálfu, hvað hlaupahaldarar þurfa að gera til að fá skráningu í hlaupin sín, hvað 100km afrekið hans Arnars fær mörg stig í samanburði við önnur met íslenskra hlaupara,...
1 h 49 min
19 August 2025
56. Hlynur reynir við hraðasta maraþon á Íslandi
Brautarmetið í Reykjavíkurmaraþoninu var sett um það leyti sem Hlynur Andrésson var að fæðast. Hann er búinn að strengja saman góðar æfingavikur og mánuði og er tilbúinn í atlögu að metinu. Hlynur fer hér yfir breytingar í æfingum fyrir maraþonið, „maraþon specific“ æfingar, hvernig sumum tekst ekki að höndla síðustu 12km af maraþonvegalengdinni, skóbúnaðinn sinn og zone æfingar.
19 min
19 August 2025
55. Baldvin Þór í vígahug fyrir RM
Hann er ekki hér til þess að taka þátt. Hann er hér til að hlaupa hröðustu 10 kílómetra í Íslandssögunni og hann langar að gera það á Íslandi! Íslandsmetið, sem Baldvin sjálfur á, er 28:51 og hann mætir hingað í settið til að fara yfir leikplanið og hvernig æfingar hafa gengið síðustu mánuði.
19 min
04 August 2025
54. Halli Gilli & Sigfinnur – 100km haus, magaflóran, líkamsklukkan og Laugavegurinn
Haraldur Gísli og Sigfinnur kláruðu Gyðjuna um helgina og komu í stúdíóið til að ræða hlaupið, æfingarnar, motivationið, andlegu áskorunina, magaflóruna (Kilian er kominn á vagninn), líkamsklukku hlauparans og Laugavegshlaupið.
1 h 32 min
02 August 2025
53. Elísa Kristinsdóttir – Viðstöðulausar bætingar, frá 10km upp í 400km
Elísa vann í dag Súlur Vertical Gyðjuna 100km á tímanum 10:45. Hún tekur brautarmetið af Andreu Kolbeinsdóttur og slær það um rúmar 90 mínútur. Óstaðfestar tölur gefa henni hæsta ITRA stig sem íslensk kona hefur náð. Ever.Planið var þó allt annað komandi inn í þetta hlaup… Elísa ræðir hlaupið, hvað fór úrskeðis og hvað fór vel, lægðina eftir 400km bakgarðinn í október, að snúa baki við...
1 h 10 min
23 July 2025
52. Hugarfarsbreyting eftir heilaæxli: 50 ára sjómaður verður Íslandsmeistari í hjólreiðum - Þorsteinn Bárðarson
Þorsteinn Bárðarson hefur varið lífi sínu á sjónum. Hann kepptist við að vera aflamestur, fór út í öllum veðrum og tók lengri róðra en hinir með þeim afleiðingum að hann klessti á vegg og þurfti að breyta um lífsstíl til að lágmarka streitu og hámarka heilsu. Á sama tíma koma hjólreiðar inn í líf Þorsteins en hann rekur söguna af því hvernig hann náði að para saman sjómennsku og erfiðar æfingar á...
1 h 57 min