zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Heimskviður
News & Politics
Icelandic
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Website
Episodes
244
28 February 2026
247 - Endalok Stranger Things og almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum
Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi...
45 min
21 February 2026
246 - Trainspotting og óður til MTV
Kvikmyndin Trainspotting er þrítug um þessar mundir. Hún kom fyrst í kvikmyndahús 23. febrúar 1996 og hefur síðan öðlast sess í kvikmyndasögunni og er að mörgum talin meðal bestu kvikmynda tíunda áratugarins. Myndin fjallar um vinahóp í Edinborg í Skotlandi sem er djúpt sokkinn í heróínneyslu. En Trainspotting er miklu meira en en saga af ógæfusömum vinum, eins og Dagný Hulda Erlendsdóttir komst...
49 min
14 February 2026
245 - Sterar á Ólympíuleikum og þrengt að elítunni í Rússlandi
Það hefur gengið á ýmsu á vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem hefur verið í umræðunni. Í þættinum ætlum við að fjalla um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta...
41 min
07 February 2026
244 - Átök innan Bandaríkjanna og Heated Rivalry
Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga...
48 min
31 January 2026
243 - Nick Fuentes og pöndupólitík
Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill að hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess að þjóðríkið bíði óafturkræfan skaða. Hann segist líka elska Hitler, hefur lagst gegn því að konur séu útivinnandi,...
44 min
24 January 2026
242 - Grænland, færeyska handboltaævintýrið og Beckham fjölskyldan
Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó að Trump hafi nú útilokað að beita valdi til að taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um þetta en hann kom frá Grænlandi í síðustu viku. Hann segir okkur frá því hvernig Grænlendingum líður,...
43 min
17 January 2026
241 - Komandi kosningar og framhaldsmyndir
Árið hófst með hvelli úti í heimi, en hvaða áhrif hafa atburðirnir á komandi kosningar? Kólumbíumenn kjósa á árinu, á meðan Trump reynir að styrkja ítök sín í Suður Ameríku og margir Evrópubúar horfa til kosninga í Ungverjalandi þar sem Viktor Orban hefur haldið um stjórnartauma í 15 ár.2026 verður ár framhaldsmyndanna í bíó. Við rýnum í dagskrána með manni sem veit allt um Avengers heiminn og...
44 min
10 January 2026
40 min
20 December 2025
Heimskviður - hátíðarútgáfan
Við veljum saman brot af því besta í síðasta þættinum fyrir jól. Við fjölluðum um Sharenting í nóvember og áform yfirvalda á Spáni að setja skorður á það hverju foreldrar megi deila af börnum sínum á netinu og hverju ekki. Og svo reyndum við að svara stærri spurningum, hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar geta hætturnar verið?...
42 min
13 December 2025
240 - Jákvæðu fréttirnar
Við verðum á jákvæðum og uppbyggilegum nótum í Heimskviðum í síðasta þættinum fyrir jól. Þátturinn verður því með örlitlu jólaívafi, við skoðum jólamyndir og jólatónlist en fyrst og fremst ætlum við að segja ykkur jákvæðar og skemmtilegar fréttir utan úr heimi. Til dæmis hvernig ástralskur áhrifavaldur kom því til leiðar að 88 ára gamall ekkill frá Michigan í Bandaríkjunum gat loks hætt að vinna....
48 min