Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Podcasts
Audiobooks
Bible
By Genre
By Location
By Language
Religious
Music
News
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Björn Ingi Hrafnsson
Grjótkastið
News Commentary
Icelandic
Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.
Website
Episodes
Episodes
80
29 October 2026
Alvörutímar — fyrr og nú
Þungavigtarumræða á dýptina um alvörutíma fyrr og nú með Dr. Guðna Th. Jóhannessyni prófessor í sagnfræði og fv forseta og þeim Agnari Tómasi Möller og Þorbirni Atla Sveinssyni. Þjóðarsagan um þorskastríðin og sigrana á Bretum, staða alþjóðamála, er eftirsjá að forsetaembættinu, hversu alvarleg staða er að teiknast upp í efnahagsmálum (hversu svört er staðan). Skylduhlustun fyrir þá sem vilja...
2 h 8 min
21 October 2026
Dramatíkin í Viðreisn og næstu skref
Þrír þungavigtarþingmenn; Bergþór Ólason, Jens Garðar Helgason og Stefán Vagn Stefánsson ræða stöðuna í pólitíkinni; vanda Viðreisnar eftir brotthvarf Jóns Gnarr -- eru frekari tíðindi framundan af flokknum? Hagkerfið hefur snöggkólnað, skattar hækka og gjöld og spurningar vakna um það hve lendingin verður hörð. Hvað er eiginlega framundan og hver verða áhrifin á ríkisstjórnina og...
1 h 4 min
14 October 2026
Grjótharðar gegn ríkisvæðingu á öllum sviðum
Þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og útgefandinn Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ræða samdráttinn í samfélaginu, hina endalausu útþenslu báknsins, ríkisvæðingu á öllum sviðum, sjálfkeyrandi bíla, erfðafjárskatt, samkeppnisstöðu fjölmiðla og stöðuna í pólitíkinni.
55 min
07 October 2026
Skrítin stemning og skellur framundan
Bjarnheiður Hallsdóttir og Jón Karl Ólafsson þekkja íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustuna sérstaklega út og inn. Þau hafa áhyggjur af því að framundan sé skellur í atvinnulífinu, furða sig á gengi krónunnar og afstöðu stjórnvalda til ferðaþjónustunnar og skorti á langtímasýn og spá í spilin fyrir næsta ár.
57 min
04 October 2026
Skuggabankastjórnin okt/26
Skuggabankastjórnin greinir stöðu og horfur fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í október 2026. Þórður Pálsson er mættur að venju og Konráð S. Guðjónsson situr fundinn að þessu sinni í fjarveru Sigurðar Hannessonar. Að venju er margt að ræða. Staða á vinnumarkaði, gengi krónunnar, umrót á alþjóðamörkuðum, fjárlögin, atvinnuleysið og blessuð verðbólgan, svo eitthvað sé nefnt. Skylduhlustun fyrir þá...
57 min
25 September 2026
Hvað verður um Icelandair? Og niðursveiflan framundan
Það var ekki töluð vitleysan þegar Hermann Guðmundsson, Hörður Ægisson og Sigurður Már Jónsson settust á rökstóla í Grjótkastinu um stöðu og horfur í íslensku hagkerfi. Mjög djúp niðursveifla virðist í vændum, en þó er ofsagt að allt sé að fara í skrúfuna. Miklu skiptir hvað verður um Icelandair á næstu vikum. Af hverju styrkist krónan enn? Hvað gerist þegar atvinnuleysi rýkur upp? Er...
1 h 23 min
10 September 2026
Kreppa í kortunum
Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem margir telja vísbendingu um yfirvofandi alvarlega kreppu á Vesturlöndum og víðar.
52 min
05 September 2026
Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB?
Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum og margt fleira.
38 min
27 August 2026
Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn
Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?
19 min
25 August 2026
Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild
Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðis og margt fleira.
20 min