zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
300
09 March 2026
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Áttundi og loka þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Oddur Hafliðason fyrir Dómarastéttina og Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
09 March 2026
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi.Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega.Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið.Guðmundur...
08 March 2026
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Leon Péturs fóru ofan í saumana á Bestu deildinni nú þegar það er mánuður í mót.
07 March 2026
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 2026 á dagskrá.Rætt er um öll liðin, farið yfir helstu fréttir og frammistöðuna á undirbúningstímabilinu.Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í fiskabúrinu og sérstakur gestur er fótboltaþjálfarinn Haraldur Árni Hróðmarsson sem hefur verið að lýsa leikjum undirbúningstímabilsins á Livey.
06 March 2026
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.
06 March 2026
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Enski boltinn eftir 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Kári Snorra í Pepsi Max stúdíóinu.Arsenal styrkti stöðu sína með naumum 1-0 sigri gegn Brighton. Á meðan gerði Manchester City aðeins jafntefli gegn Nottingham Forest.Liverpool tapaði óvænt gegn Úlfunum, Manchester United tapaði loks undir stjórn Michael Carrick og vont verður verra hjá Tottenham sem nálgast...
02 March 2026
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Goggarinn fóru yfir helgina.
02 March 2026
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.
02 March 2026
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
Það er spenna á öllum vígstöðum í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina.Arsenal og Manchester City eru að berjast á toppnum, Meistaradeildarbaráttan er hörð og á hinum enda töflunnar eru nokkur lið í fallbaráttu.Er Tottenham versta lið deildarinnar þessa stundina? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta eftir umferðina.
28 February 2026
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net kemur tvíefldur til leiks.Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem hefur verið í gangi í íslenska boltanum og rætt um landsleik Mexíkó og Íslands. Hanna Símonardóttir er á línunni.Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis. Víða er komið við í spjalli við hann.